Flugeldar á 20 - 30 % afslætti - Aðeins í dag - Prúttmarkaður
Vegna fjölda áskorana og þar sem Sigurvon á eitthvað eftir af flugeldum, þá verður opið í dag 6. janúar frá kl 14:00 -16:00 í húsnæði björgunarsveitarinnar að Austurgarði 4-6 Sandgerði.
Björgunarsveitin Sigurvon þakkar ykkur sem lögðuð leið ykkar að Austurgötu og keyptuð af okkur flugelda og styrktuð okkur í leiðinni. Við metum stuðning ykkar mikils því án hans væri starf okkar ómögulegt. Vonum að þið hafið átt gott kvöld og óskum ykkur sem og öðrum gleðilegs árs og þökkum fyrir það liðna.
Björgunarsveitin Sigurvon fór að kvöldi 19. desember að "Wilson Road" strandstað Wilsons Muuga til að minnast þess að 5 ár eru liðin frá þessu mikla strandi. Meðlimir Sigurvonar stóðu í ströngu allann þann tíma sem leið frá strandinu og á meðan olía var tekin frá borði, einnig aðstoðuðu þeir við hreinsunarstarf sem tók dágóðan tíma og svo kom sveitin að því að ná honum á flot nokkrum mánuðum seinna.
Sandgerðingurinn Guðjón Ólafsson oft kallaður Gaui Óla og kenndur við Sjávarmál ehf. veitti björgunarsveitinni Sigurvon rausnarlegan peningastyrk nú á dögunum.
Kæru Sandgerðingar.
Nú fer senn að líða að áramótum og þar með fara flugeldarnir að rjúka út af sölustöðum og þeir sprengdir við hvert götuhorn í bænum.
Undanfarin ár hefur björgunarsveitin Sigurvon selt flugelda í björgunarstöðinni og nú verður engin breyting á.